Ljóðabók # 53158
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ljóðabók. Ljóð eftir Einar Gunnrasson. Þ. H. Magnússon sá um útgáfuna.
Einar Gunnarsson fæddist í Völvuholti í Mjóafirði í desember 1911. Foreldrar hans voru Gunnar Sigfússon, bóndi þar, og kona hans Anna Jórunn Jónsdóttir. Einar var níundi í hópi ellefu systkina. Innan við fermingu fór Einar að heiman og sá sér farboða eftir það. Hann var einn vetur í Reykholtsskóla í Borgarfirði og eitt ár var hann í Danmörku. Hann var lengst af búsettur á Suðurlandi.
Einar var starfsmaður Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi frá upphafi verksmiðjunnar og í aldarfjórðung eða þar til hann varð óvinnufær af veikindum.
Þessi bók geymir ekki brauðstrit Einars, heldur andvökur hans og tómstundaverk. Ást á náttúrunni og landinu er rík í ljóðum hans sem og einlægt hatur á striðsbrölti.
Flest kvæðin í bókinni eru tekin úr allmikilli kompu, sem Einar átti í fórum sínum. Vonandi hefur oftast tekist að lesa rétt úr rithönd Einars. Þar sem bókin kom út að Einari látnum gafst ekki kostur á að bera einstök vafaatriði undir hann.
Þetta er eina bókin sem komið hefur út með ljóðum Einars Gunnarssonar.