Ljóðasafn Hannesar Pétursson # 80266

Regular
3,900 kr
Sale
3,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2005
Condition
—
Binding
—

Ljóðasafn Hannesar Pétursson. Njörður P. Njarðvík ritar formála.
Hannes Pétursson er löngu viðurkenndur sem eitt helsta skáld 20. aldar. Allt frá því hann sendi frá sér Kvæðabók árið 1955, aðeins 23 ára að aldri, hefur þjóðin tekið skáldskap hans fagnandi. Fá skáld yrkja af jafn miklum hagleik og öryggi, bæði undir hefðbundnum háttum sem og í frjálsara formi, og bragleikni Hannesar helst í hendur við einstaka myndvísi. Hannes yrkir um mannlegar tilfinningar í öllum sínum fjölbreytileika, en ekki síst eru það yrkisefni tengd náttúru og sögu Íslands sem hafa gert hann ástsælan með þjóðinni.
Í þessu ljóðasafni sem út kom 1998 og var endurútgefið 2005 er að finna öll ljóð Hannesar fram að þeim tíma. Auk Kvæðabókar eru það bækurnar Í sumardölum, Stund og staðir, Innlönd, Rímblöð, Óður um Ísland, Heimkynni við sjó, 36 ljóð og Eldhylur, en fyrir þá síðastnefndu hlaut Hannes Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1993.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.