Ljóðveldið Ísland # 86883
- Regular
- 2,900 kr
- Sale
- 2,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ljóðveldið Ísland. 65 ár í 66 erindum við þig. Ljóð eftir Sindra Freysson.
"Ljóðveldið Ísland, er hápólitískt söguljóð, þarsem saga lýðveldisins í 65 ár er rakin í 66 erindum, eins og segir á titilsíðu. Bókin er beint viðbragð við kreppunni og þar veltir höfundur fyrir sér sögu íslenska lýðveldisins og stiklar á ýmsum atburðum, bæði stórum og smáum. Markmiðið er að greina íslenska lýðveldið og varpa ljóði, afsakið, ljósi á kreppuna sem nú fer hörðum höndum um bankareikninga (en ekki bensíntanka ef marka má fáránlegt bílafarganið) Íslendinga. Í heildina má segja að þetta heppnist. Þrátt fyrir að stefið ‘ljóðveldið’ verði ofurlítið þreytt þegar á líður, þá nær það ekki að draga úr þeim slagkrafti sem einkennir bókina. Lokakaflanir, þeir sem eru næst okkur í tíma, eru kannski hvað óreglulegastir í laginu, enda þar af mörgu að taka og fjarlægðin hefur ekki gert höfundi eins auðvelt fyrir að raða atburðum, eins og fyrr segir bæði smáum og stórum, í það sláandi samhengi sem hann nær að fanga víða framar í bókinni. Á hinn bóginn er kannski eðlilegt að mikið gangi á undir lokin, bálkurinn er þess eðlis og jafnvel mætti segja að finna megi samspil milli þeirrar upplausnar sem ljóðið lýsir og þeirrar upplausnar sem kemur inn í ljóðið þarna undir lokin." Úlfhildur Dagsdóttir.