Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945 # 88762
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Author
Location
Reykjavík. JPV - Þjóðminjasafn Íslands, 2001
Date
—
Condition
—
Binding
—
Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945 - Photographers of Iceland 1845-194. Inga Lára Baldvinsdóttir tók saman. Ensk þýðing Anna Yates & Helen S. Maclean. Myndaval Inga Lára Baldvinsdóttir og Ívar Brynjólfsson.
Í þessu viðamikla verki leiðir höfundur lesendur gegnum fyrstu öld ljósmyndunar á Íslandi af mikilli þekkingu. Saga ljósmyndunar í öllum sínum margbreytileika er sögð frá frumskeiði hennar um miðja 19. öld og fram til stríðsloka. Í sérstöku ljósmyndaratali er gefin mynd af öllum sjálfstætt starfandi ljósmyndurum á tímabilinu og birt vandað sýnishorn ljósmynda eftir hvern og einn þeirra. Bókina prýða hátt á fimmta hundrað ljósmyndir sem sýna þróun ljósmyndunar og veita jafnframt fágæta sýn á þjóðina og sögu hennar. Allar myndir ljósmyndaranna eru birtar óbreyttar og í upprunalegum lit og margar þeirra hafa ekki áður birst á prenti. Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945 er skrifuð af okkar helsta sérfræðingi í ljósmyndasögu, Ingu Láru Baldvinsdóttur, deildarstjóra myndadeildar Þjóðminjasafns Íslands. Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945 er fræðirit á nýju sviði, ljósmyndasögu, sem lítt hefur verið sinnt hérlendis og ætti að höfða til allra áhugamanna um sögu landsins. Enskur bókarauki. (Bókatíðindi 2021).