Lýðræði í viðjum valds. Blöndudeilan # 78367
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Lýðræði í viðjum valds. Blöndudeilan. Heimildum flett með Helga Baldurssyni.
Í ritinu fjallar höfundur ítarlega og af mikilli þekkingu um "Blöndudeiluna" svokölluðu, sem kunn varð af umfjöllun fjölmiðla fyrir um hálfum öðrum áratug, en hafði að heita má legið í þagnargildi meðal alls þorra manna um nokkurt árabil, þegar bókin birtist. Ekki fer á milli mála, að bókin á að vera kærkomið heimildarrit öllum þeim mörgu mönnum körlum og konum um land allt, sem láta sig varða umhverfis- og náttúruverndarmál, og þangað geta þeir sótt mikinn lærdóm, einkum um það hvernig ekki á að standa að mikilvægum ákvörðunum um stórframkvæmdir á viðkvæmum öræfasvæðum, ákvörðunum, sem ekki verða aftur teknar eftir að framkvæmdar hafa verið og sem skilja eftir ófagran vitnisburð um skammsýni þeirra manna, er bera ábyrgð á þeim.
Bókarhöfundur dregur ekki dul á, að hann hafi sjálfur verið í hópi þeirra landverndarmanna, sem beittu sér gegn þeirri virkjunarleið Blöndu, er valin var en sem hafði í för með sér mun meiri landeyðingu en vera þurfti ef önnur leið hefði verið valin en í því efni mátti vissulega velja milli mismunandi kosta. Hann tekur einnig skýrlega fram, í upphafi bókar, að afstaða hans til virkjunar Blöndu hafi haft áhrif á val hans á heimildum og umfjöllun um þær. Lesandinn má því ekki vænta þess, að höfundurinn tali úr sæti hlutlauss dómara í þessu ágreiningsmáli, enda myndi það sæti vandfyllt. Bókin hefur að geyma málsvörn og rökstuðning fyrir skoðunum landverndarmanna og þar er sannarlega vel og fimlega á málum haldið. (Páll Sigurðsson í ritdómi í Morgunblaðinu. www.mbl.is)