Mannaferðir og fornar slóðir # 70605
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Mannaferðir og fornar slóðir. Magnús Björnsson á Syðra-Hóli tók saman og skrásetti.
Magnús á Syðra-Hóli er enginn viðvaningur á ritvellinum þótt þetta sé fyrsta bók hans. Þrátt fyrir annasaman búskap í 40 ár og eril margvíslegra trúnaðarstarfa fyrir sveit sína, hefur hann áður ritað marga sagnaþætti, sem birzt hafa í ritum og bókum undanfarin ár, en flesta er þá að finna í bókum Sögufélags Húnvetninga, Svipum og sögnum I-IV. Hafa þessi verk hans verðskuldað athygli og hlotið réttmætt lof dómbærustu manna.
Magnús hefur til að bera marga kosti góðs fræðimanns og sagnaritara. Hann er vel menntaður maður, stálminnugur, vandvirkur og vandfísinn á heimildir, ættfræðingur ágætur og síðast en ekki sízt hefur hann yfir að ráða þeirri stílleikni og orðagnægð, að ritverk hans verða sannnefnd gullkista öllum þeim er íslenzkri tungu unna. (Káputexti).
Hér eru þættir af Séra Eggert Ólafsson Brím, Tvær ferðasögur: Farið í skóla ; Heim úr skóla, Frímann barnakennari, Jakob Frímannsson, Langt rekið, Guðmundur í Kollugerði, Guðmundur í Höskuldsstaðaseli, Bjarni á Strjúgi, Jón í Jeríkó, Helför Baldvins, Helga, Jón Kurfur, Friðrik stamari, Guðmundur skrifari og Sigríður á Haukagili.