Matur og drykkur # 90207

Regular
19.500 kr
Sale
19.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1949.
Date
Condition
Binding

Matur og drykkur. Eftir Helgu Sigurðardóttur, skólastjóra Húsmæðrakennaraskóla Íslands. 
Þetta er önnur prentun bókarinnar.

Helga Sigurðardóttir (17. ágúst 1904 – 26. ágúst 1962) var skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands og höfundur fjölda matreiðslubóka. Hún hafði mikil áhrif á mótun íslenskra matarhefða um miðja 20. öld.
Helga fæddist á Akureyri, dóttir Sigurðar Sigurðssonar, síðar búnaðarmálastjóra, og Þóru Sigurðardóttur. Föðursystir hennar var Jóninna Sigurðardóttir matreiðslubókarhöfundur. Hún ólst upp á Hólum í Hjaltadal, þar sem faðir hennar var skólastjóri Bændaskólans á Hólum. Árið 1922 fór hún til náms í húsmæðraskóla í Danmörku og síðan í húsmæðrakennaraskóla Birgitte Berg-Nielsen og lauk þaðan húsmæðakennaraprófi 1926. Helga fór þá heim og stundaði matreiðslu og kennslu næstu árin, lengst af við Austurbæjarskóla.
Helga gaf út fyrstu matreiðslubók sína, Bökun í heimahúsum, árið 1930 og næstu árin kom hver bókin af annarri, þar á meðal kennslubókin Lærið að matbúa. Helga innleiddi fjölda nýjunga í íslenskri matargerð, fylgdist vel með því sem var að gerast í nágrannalöndunum og hvatti húsmæður óspart til að nota meira af grænmeti og ávöxtum og bæta matarvenjur og næringu.
Árið 1942 var Húsmæðrakennaraskóli Íslands stofnaður, en fyrir því hafði Helga lengi barist, og varð hún fyrsti skólastjóri hans, gegndi því starfi allt til dauðadags og mótaði alla húsmæðrafræðslu í landinu næstu áratugina. Fimm árum síðar kom út bókin Matur og drykkur, yfirgripsmikil grunnbók sem varð helsta uppflettirit Íslendinga um matargerð og uppskriftir næstu áratugi. (Wikipedia).
Gott eintak í góðu, skreyttu skinnbandi.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.