Maður og menning # 51900
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Maður og menning. Hugmyndasaga og kenningar mannfræðinnar. Eftir Harald Ólafsson.
Í þessari bók fjallað um skilning og skýringar á eðli manns og menningar frá sjónarhorni mannfræðinnar. Höfundur rekur þróun helstu hugmynda um manninn frá tíma upplýsingarstefnunnar til nútímans og setur hugmyndir mannfræðinnar í samhengi við almenna hugmyndasögu þjóðfélagsfræða og líffræða. Höfundur fer sínar eigin leiðir í túlkun klassískra fræðiverka á fræðasviðinu og byggir jöfnum höndum á þýskum, frönskum og engilsaxneskum frumheimildum. Viðfangsefnið er fjölbreytt, frá göldrum, trú og töfrum til veraldlegrar skynsemishyggju, frá fábrotnum siðum frummannsins til flókins nútímalegs þjóðskipulags.
Haraldur Ólafsson stundaði nám í heimspeki við háskólann í Strassborg og París. Hann lauk einnig prófi í trúarbragðafræði og menningarlegri og líffræðilegri mannfræði frá háskólanum í Stokkhólmi og Uppsölum. Þá lauk hann Fil.lic.- prófi frá Stokkhólmsháskóla. Hann hefur kennt mannfræði, trúarbragðafræði og kenningar í félagsvísindum við Háskóla Íslands frá 1973, fyrst í námsbraut í þjóðfélagsfræðum og í félagsvísindadeild frá stofnun hennar.