Með góðu fólki # 73287
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Með góðu fólki. Endurminningar. Oscar Clausen segir frá.
Oscar Clausen fæddist í Stykkishólmi í febrúar 1887. Foreldrar hans voru Holgeir Peter Clausen, kaupmaður og alþingismaður Snæfellinga um skeið og kona hans Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja, alsystir dr. Jóns Þorkelssonar forna. Oscar ólst upp í Stykkishólmi til tíu ára aldurs en þá fluttu foreldra hans til Reykjavíkur. Hann stundaði nám við Lærða skólann í þrjá vetur, stundaði verslunarstörf í Stykkishólmi, var í siglingum, kaupmaður á Grundarfirði og víðar. Árið 1949 fluttist Oscar til Reykjavíkur og bjó þar síðan, lengst af á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis, fyrir ofan kaffihúsið Prikið.
Oscar var kikilvirkur rithöfundur. Hann sendi frá sér 20 bækur, flestar um þjóðlífsþættir fyrri tíma, m.a. sagnaþætti af Snæfellsnesi og bækur um dulræn fyrirbrigði enda var hann sjálfur hanndur undir dulræna reynslu og ófreskigáfu.
Oscar stofnaði Fangahjálp Íslands í ársbyrjun 1949 og vann allar götur síðan ötullega að bættum aðbúnaði og hagsmunum fanga á Íslandi. Hann mun um langt árabil hafa fengið til sín, leiðbeint og aðstoðað eftir megni á annað þúsund ungmenna sem fengið höfðu refsidóma. Þá hafði fangahjálp hans og Fangahjálp Verndar sem frú Þóra Einarsdóttir stofnaði árið 1960 umtalsverð áhrif á fjölgun skilorðsbundinna refsivistardóma hér á landi.
Oscar lést í apríl árið 1980.