Með sigg á sálinni # 76519

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2019
Condition
Binding
Með sigg á sálinni. Saga Friðriks Þórs Friðrikssonar. Einar Kárason tók saman og skráði.
Þegar tveir miklir sagnameistarar sem hafa verið nánir vinir frá unglingsárum leggja saman í púkk er viðbúið að útkoman verði safarík og skrautleg. Hér segir Einar Kárason rithöfundur frá ævi Friðriks Þórs Friðrikssonar, allt frá bíódögum og sveitasögum bernskunnar til Óskarsverðlaunatilnefningar og kynna leikstjórans af stórstjörnum af ýmsu tagi.


Lífsferill Friðriks Þórs hefur verið bæði ævintýralegur og öfgafullur. Hann hefur legið milli heims og helju á gjörgæsludeild í Þessalóníku við hliðina á sundurskotnum eiturlyfjabarón; verið handtekinn um nótt í Brasilíu sem grunaður hryðjuverkamaður; rekið umsvifamikið fyrirtæki og misst aleiguna; veitt marga stórfiska sem ekki minnka neitt að ráði í frásögnum þeirra félaganna; gert kvikmyndir um norræna kúreka, braggabúa, skyttur og fálkaþjófa, alheimsengla og einhverfu – og er þá fátt eitt talið.


Hér er sagt frá fjölmörgum litríkum karakterum, sumum heimsþekktum, öðrum af botni mannfélagsins og ýmsum þar á milli – en alltaf tekst þeim Friðriki og Einari að draga fram gamanmál eða örlagasögur sem gera þá minnisstæða.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.