Meira ljós! # 51152

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Date
Condition
Binding
Meira ljós! Fyrirlestur haldin á Eyrarbakka og Stokkseyri í marzmán. 1899 af síra Ólafi Ólafssyni að Arnarbæli.
Síra Ólafur spyr áheyrendur sína; Hvert sé máttugasta valdið á Íslandi. Eru það peningar? Menntun? Mannvitið? Ó nei, ó nei. Það er Heimskan! Hann segir "Íslenzka þjóðin hefir neytt mig til að taka þá trú, að heimskan er máttugasta valdið á Íslandi". Ólafur er ekki par hrifinn af valdhöfum og vandar þeim ekki kveðjunar. Þannig segir hann drottninguna heimska, forsætisráðherrann kallar hann "vonur vani", Fjármálaráðherra "Ráðleysu", Kirkju- og atvinnumálaráðherra "Andlegan svefn", Dómsmálaráðherra "Hleypidómara", Samgönguráðherra "Sundrung eða sitt líst hverjum".
Síra Ólafur kynnir síðan Stjórnarskrá heimskunnar. Þannig hljómar fyrsta grein: - Brennivín er ein hin fyrsta nauðsynjavara þjóðarinnar, má enginn maður horfa í krónuna, ef brennivín er í boði, því það er hin sanna undirstaða allrar ánægju og alls mannfagnaðar.
Þetta er lúð og lesið eintak og hefur verið saumað í kjölinn með nál og tvinna.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.