Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur I-IV # 54590
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur. Handrit búið til prentunar Hjörtur Pálsson.
Hulda fæddist þann 1. janúar 1897 á Möðruvöllum í Hörgárdal, dóttir hjónanna Stefáns Stefánssonar kennara og Steinunnar Frímannsdóttur. Hún lauk gagnfræðaprófi á Akureyri árið 1912 og næstu ár stundaði hún tungumálanám og handavinnu þar í bæ. Hún lauk prófi frá húsmæðraskólanum í Vording borg í Danmörku árið 1916. Þá nam Hulda píanóleik og tónfræði í Tónlistarskóla Matthisson Hansen í Kaupmannahöfn 1916-1917 og var þar við framhaldsnám 1919-1921. Hún var stundakennari í dönsku við Gagnfræðaskóla Akureyrar 1921-1923 og kenndi einnig píanóleik þessi ár. Frá 1932-1937 var hún skólastjóri kvennaskólans á Blönduósi og aftur árin 1953-1967. Hún var skólastjóri Húsmæðraskóla Reykjavíkur frá stofnun hans árið 1941 og til ársins 1953. Árið 1954 var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og stórriddarakrossi orðunnar árið 1969.
Hulda var organleikari Þingeyrakirkju í 15 ár og átti þátt í stofnun kvenfélags Sveinsstaðahrepps árið 1928 og var í stjórn þess í 15 ár. Þá var hún í stjórn Sambands norðlenskra kvenna og formaður þess 1960-1964.