Minningarmörk í Hólavallagarði # 88739
- Regular
- 29.500 kr
- Sale
- 29.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Minningarmörk í Hólavallagarð. Eftir Björn Th. Björnsson. Ljósmyndun Pjetur Þ. Maack.
Gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu, Hólavallagarður, var tekin í notkun árið 1838 og á því 150 ára afmæli um þessar mundir. Í þessari glæsilegu bók rekur Bjrön Th. Björnsson sögu garðsins allt frá því að Lorentz Angel von Krieger stiftamtmaður hóf baráttu sína fyrir því að Reykvíkingar yrðu framvegis jarðaðir í helgum reit við Hólavallatún. Hér er sagt líflega frá ýmsu því mæta fólki sem þar hvílir, Guðrúnu Oddsdóttur sem varð "vökumaður" hins nýja garðs, Steingrími Jónssyni biskup, skáldinu Sigurði Breiðfjörð, Sveinbirni Egilssyni rektor og skáldi, Sigurði Guðmundssyni málara, tómthúsmanninum Jóni "ríka" í Stöðulkoti, Jóni Sigurðssyni forseta, Steinunni Sveinsdóttur sakakonu frá Sjöundá og Þorleifi Repp málfræðingi svo nokkrir séu nefndir.
Þá fjallar höfundur ítarlega um hin fjölskrúðugu minningarmörk í Hólavallagarði og höfunda þeirra sem þekktir eru. Rakin er þróun steinsmíða og legsteinagerðar hér á landi og kemur í ljós að garðurinn hefur að geyma einstakar heimildir um gamalt handverk. Jafnframt gefa legsteinarnir oft vísbendingar um tíðarandann og ýmis sérkenni þeirra sem undir þeim hvíla. Frá þessu segir Björn af alkunnu stílfjöri sínu og andríki og byggir á ófáum skoðunarferðum um garðinn undanfarin ár.
Pétur Þ. Maack hefur prýtt bókina fjölda ljósmynda af leiðum og minningarmörkum í garðinum, en þar er einnig talsvert af eldri ljósmyndum. Þá er í bókinni myndarlegt yfirlitskort af garðnum sem koma mun vegfarendum þar að góðum notum. (Káputexti).