Óminnisland # 53328
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Óminnisland. Ljóð eftir Aðalstein Ingólfsson.
Aðalsteinn Ingólfsson er fæddur 1948. Hann stundaði nám í bókmenntum og listasögu í Skotlandi, Englandi, Ítalíu og Svíþjóð. Lauk mastersprófi í enskum bókmenntum og málsögu frá háskólanum í St. Andrews, Skotlandi og mastersprófi í listasögu frá Courtauld Institute of Art í Lundúnum.
Hann hefur starfað sem listfræðingur við Listasafn Reykjavíkur (Kjarvalsstaði), Listasafn Íslands og fleiri stofnanir, verið listgagnrýnandi og menningarritstjóri DV, auk þess að vinna þætti fyrir útvarp og sjónvarp. Hann hefur kennt við Myndlista-og handíðaskóla Íslands og Háskóla Íslands.
Aðalsteinn hefur ritað á þriðja tug bóka um íslenska myndlistarmenn, þar á meðal um Kjarval, Kristínu Jónsdóttur, Eirík Smith, Leif Breiðfjörð, Kristján Davíðsson, Sigurjón Ólafsson og Erró, auk bóka um færeyska listamenn. Til skamms tíma var hann forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, en vinnur nú við rannsóknir, skrif og sýningarstjórn.
Óminnisland er fyrsta bók Aðalsteins.