Misjafn sauður í mörgu fé # 87972
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Misjafn sauður í mörgu fé. Lítið sögurit um margt eftirtektavert. Höfundur Eiríkur Ólafsson í Reykjavík, áður fyrri á Brúnum.
Eiríkur Ólafsson á Brúnum var íslenskur bóndi og mormóni. Hann er frægastur fyrir ferðasögur sínar og sagnaþætti sem út komu í einni bók um miðja 20. öld. Eiríkur á Brúnum er fyrirmynd Halldórs Laxness að Steinari í Hlíðum undir Steinahlíðum í skáldsögu hans Paradísarheimt.
Eiríkur bjó að Brúnum undir Eyjafjöllum í 23 ár. Á síðustu búskaparárum sínum, árið 1876, tók hann sér ferð á hendur til Kaupmannahafnar til að skoða sig um og ef til vill jafnframt til að hitta góðhest sem Valdimar prins hafði fengið hjá honum þegar hann var hér á ferð í fylgd með konunginum föður sínum tveimur árum áður. Eiríkur fluttist að Ártúnum í Mosfellssveit árið 1887. Þar tók hann mormónatrú og fór til Utah í Bandaríkjunum árið 1881 og var þar í 8 ár. Var hann þá einu sinni sendur hingað heim til trúboðs og var þá illa tekið. Eiríkur sagði skilið við mormónatrú árið 1889 og fluttist þá heim til Íslands og lést í Reykjavík árið 1900.