Möttull konungur eða Caterpillar # 58510

Regular
3,900 kr
Sale
3,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1974
Condition
Binding
Möttull konungur eða Caterpillar. Saga úr sveitinni eftir Þorstein frá Hamri.


Allt sem til framfara, framvindu og framþróunar horfði var hugleikið Möttli konungi, og hélt hann sífellt úti njósnum um tól og tæki er að gagni mættu koma í hernaði, orkurækt og öðrum samfélagsumbótum. Þar var maður sem ekki fór aftur á bak. Sagt er að í tilraunum sínum með apparöt hafi hann eytt byggðir að fólki og fénaði, og um það bil er konungur lézt lífdagasaddur með gæfuríkan framþróunarferil að baki var Heljarhöfði flag eitt að sjá ef menn skyggndust inn fyrir skíðgarðinn; lágu í rofunum ryðguð skófluskrímsl, en gufur með óþefjan stigu upp af moldinni sem í tórðu fáeinar forljótar pöddur.
Fuglinn Skeri lifði lengur. Hann gekk að erfðum og öðlaðist sjálfstætt líf í hugum margra kynslóða, svo sem títt er um sjúk hugarfóstur. Fuglinn Skeri, skepnan þessi sem Möttull konungur magnaði í forneskju handa þegnum sínum að hræðast, svo hann héldi betur illa fengnum auði og tign undir Heljarhöfða, hann var fluttur hingað yfir úfin höf af Hrosskatli landnámsmanni og feðrum okkar, hásetum hans. Fuglinn Skeri dafnaði í hugum manna eins og fáránlegt orðspor úr lélegu dagblaði. Hann flögraði út úr illum draumum og varð næstum veruleiki í leikjum barna. Fuglinn Skeri, sögðu fornar ömmur og gripu fegins hendi við refsipúkanum: Illur fugl fuglinn Skeri – áþekkt og síðar var sagt á ákveðnum heimilum við unglinga: Frægir menn fyrir grimmd og ofstopa, Ólafur Friðriksson, Einar, Kiljan og Brynjólfur. Öldruð röddin varð óvenju sprök og nornarleg þegar þær tóku sér í munn heiti heljarfuglsins: Ég fer nærri um hvað sá fugl hefst að. Forðizt fuglinn Skera.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.