Myndin af langafa # 66047

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akranes
Date
1975
Condition
Binding
Myndin af langafa. Ljóð eftir Jóhann Hjálmarsson.


Á stofuveggnum hangir mynd.

Mér er sagt að hún sé af langafa,

sem ég veit að fór aldrei til ljósmyndara.

Myndin er græn í rauðum ramma.

Maðurinn á myndinni

er með gróskumikið yfirskegg

og í látlausum jakka

hnepptum upp í háls.

Hann er góðlegur á svipinn

og augnaráðið festulegt.

Faðir minn kemur sjaldan heim.

Hann er á skipi, sem siglir til útlanda.

Þegar hann kemur

horfir hann stoltur á myndina.

Hann dregur fram erlent blað,

sem hann geymir inni í skáp

með myndum af brúnaþungum mönnum

í svipuðum jökkum og maðurinn á myndinni,

þó ívið skrautlegri,

sumir þeirra eru hlaðnir orðum.

Nöfn þeirra eru framandleg.

Meðal þeirra eru Timoshenko,

Molotov, Rokossovski,

Malinovski, Zhukov,

Kaganovits og Vorosilov.

Hann segir mér að þessir menn séu hetjur

og maðurinn á myndinni sé leiðtogi þeirra.

Hann heiti Jósef Stalín

og sé kominn af fátæku fólki

eins og við öll.

Hann les fyrir mig ljóð um gæsku þessa manns,

litinn í túninu hans

og laukinn í garðinum.

Í bókaskáp föður míns eru margar bækur,

sem aldrei hafa sést í plássinu:

Ríki og bylting, Samsærið mikla

gegn Sovétríkjunum,

Undir ráðstjórn, Vor um alla veröld,

Bréf til Láru, Pistilinn skrifaði,

Salka Valka og Alþýðubókin.

Ég læri að þekkja þær veigamestu frá hinum.

Ég bendi hreykinn á þessar bækur

þegar einhver gestur kemur.

Ég horfi oft á myndina á veggnum.

Stríðið hefst og stundum heyrum við

í flugvélum.

Bretarnir koma. Pabbi ræðir oft

við hermennina

á máli, sem ég skil ekki.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.