Myndir ársins 2008 # 50678
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Author
—
Location
Reykjavík
Date
2009
Condition
—
Binding
—
Myndir ársins 2008. Bókin er gefin út í tengslum við sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu blaða- og tímaritaljósmyndum ársins 2008.
Úrval dómnefndar Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu blaða- og tímaritaljósmyndum Íslands 2008 tekur mið af þeim dramatísku atburðum sem urðu á árinu. Atburðir lifna við í minningunni og á myndunum, allt frá átökum vörubílstjóra og lögreglu í apríl til þess að íslenska handboltalandsliðið kom sigri hrósandi frá Ólympíuleikunum í Beijing í ágúst. Í inngangi bókarinnar er þó bent á að bankahrunið yfirskyggi flest annað á árinu og þar segir m.a.: “En yfir öllu gnæfa dramatískar myndir af örlagadögunum í október og nóvember þegar Ísland var úthrópað um allan heim sem gjaldþrota land sem vafamál væri hvort ætti sér viðreisnar von. Mótmælin, átökin, eggjakastið og hróp um algjöra umbyltingu samfélagsins. Þessi saga er skráð á einstakan hátt af fremstu heimildaljósmyndurum okkar. Myndir ársins 2008 er einstakur minnisvarði um sögulega tíma.”