Svarfaðardalsfjöll # 88796

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Hólar, 2011.
Date
Condition
Binding

 Svarfaðardalsfjöll. Genginn fjallahringurinn umhverfis Svarfaðardal. Höfundur og göngumaður er Bjarni E. Guðleifsson. Kortagerð Hjalti Þórðarson.
Svarfaðardalur er að sumum talinn fegursti dalur í byggð á Íslandi.  Að einhverju leyti skapast það af því að dalurinn og afdalir hans eru umkringdir sérlega fallegum en jafnframt hrikalegum fjöllum.  Þessi fjallgarður er lítt kannaður en árið 1995 ákváðu fjórir göngufélagar að ganga þennan fjallahring allan.  Hreppamörkin umhverfis Svarfaðardal eru um 120 km löng og telja 75 tinda með jafnmörgum skörðum.  Það tók félagana fimmtán göngudaga á átta árum að ljúka verkefninu.  Í bókinni Svarfaðardalsfjöll er ferðum þeirra félaganna eftir vatnaskilum og fjallseggjum lýst í máli en einnig með 138 myndum og 18 kortum.  Nöfn flestra tinda eru færð inn á myndirnar og skörð eru nafnkennd á kortunum.                                                                                     
Höfundur bókarinnar er göngugarpurinn og náttúrufræðingurinn Bjarni E. Guðleifsson á Möðruvöllum í Hörgárdal.  Hann hefur stundað fjallgöngur um árabil og skrifað um það bók, Á fjallatindum, sem var hið vandaðasta verk í alla staði.  Þessi bók er ekki síðri, hún er afar smekkleg í alla staði og kjörgripur þeirra sem áhuga hafa á fjallgöngum og náttúru Íslands.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.