New York # 62796

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1983
Condition
Binding
New York. Kvæði eftir Kristján Karlsson.



Kristján Karlsson fæddist þann 26. janúar 1922 að Eyvík á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942 lagði hann stund á nám í enskum bókmenntum við University of Berkeley í Kaliforníu og lauk þaðan B.A.-prófi 1945. Hann hélt til New York í framhaldsnám við Columbia University og lauk þaðan M.A.-prófi í samanburðarbókmenntum 1947.
Kristján hefur fengist við ljóðasmíð, smásagnagerð og greinaskrif auk þýðinga. Hann hefur ennfremur ritstýrt fjölda bóka. Hann stóð að ýmiss konar útgáfum áður en hann sendi frá sér ljóðabókina Kvæði árið 1976. Hann hlaut Davíðspennann 1991 fyrir ljóðabókina Kvæði 90 og viðurkenningu Rithöfundarsjóðs Ríkisútvarpsins ári síðar.



Fornsalinn Henderson á Tenth Ave liggur fyrir dauðanum


Ég sakna einskins en ég veit

hvað aftur skeður hér í sveit


Seg engum hvort ég hafi gert

eitt handarvik sem um er vert,


að hérna barðist Henderson

með horfna skranbúð leynda von


nú molna húsin oní urð

með opna rifu i hverri hurð


og frálaus rör sem fara i kaup
við frelsisstríðsins byssuhlaup.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.