Niels Ebbesen # 36431

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Reykjavík
Date
1944
Condition
Binding
Niels Ebbesen. Sjónleikur í fimm þáttum eftir Kaj Munk. Jón Eyþórsson sneri á íslenzku.
1943 stjórnaði Haraldur Björnsson flutningi á hinu umdeilda leikriti Kaj Munks, Niels Ebbesen, sem hernámsstjórn Þjóðverja hafði gert upptækt í Danmörku. Útsending á verkinu, í þýðingu Jóns Eyþórssonar, var því um leið frumflutningur þess.

Handritinu var smyglað til íslands og verkið flutt i fyrsta sinn hér í apríl 1943. Slíkar voru vinsældir þess, að það var endurtekið í júní sama ár, og loks voru fluttir kaflar úr því. í minningardagskrá um Kaj Munk í janúar 1944.

„Niels Ebbesen" fjallar um baráttu Dana gegn þýzkum riddurum á 14. öld. Foringi Þjóðverja er Gert, „sköllótti greifinn", ribbaldi mikill, sem einskis svífst í valdagræðgi sinni. Telja margir, að Hitler og enginn annar sé fyrirmynd höfundar að þeirri persónu.
Kaj Munk fæddist í Maribo á Lálandi 1898. Hann nam guófræði og varð prestur í Vedersö á Jótlandi. Framan af ævi var Munk ekki frábitinn einræðisstjórn, en innrás Ítala í Eþíópíu og þó einkum Gyðingaofsóknir Hitlers opnuðu augu hans og hann barðist hatrammlega gegn nasistum á hernámsárunum, bæði i ræðu og riti. Að lokum myrtu þýzku böðlarnir hann í janúar 1944. Munk fór að skrifa leikrit á skólaárunum og var í fyrstu undir áhrifum frá Pirandello og expressjónistum, en tók siðan söguleg og þjóðfélagsleg viðfangsefni til meðferðar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.