Nokkrir sálmar eftir Kolbein Grímsson # 89163

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Lithoprent, 1946.
Date
Condition
Binding

Nokkrir sálmar eftir Kolbein Grímsson. Gefið út í 300 eintökum.
Ljósprentað eftir frumútgáfunni frá Hólum 1682. Nockrer Psalmar sem syniast meiga Kuølld og Morgna vm alla Vikuna. Ordter af Kolbeine Grijms Syne, wt af Bænabokk D. Johañis Havermañ.
Lítið er vitað um ævi Kolbeins og óvíst um fæðingarár hans og dánarár. Ætla má þó að hann sé fæddur um 1600 þar sem hann getur þess í Grettisrímum sínum, sem ortar eru 1658, að hann sé þá „nær sextugs aldri“ og í Nokkrir sálmar eftir Kolbein 1682 á Hólum er þess ekki getið að hann sé dáinn. – Vitað er að Kolbeinn bjó um tíma á Dagverðará undir Jökli. Ýmsar þjóðsögur eru til af Kolbeini og var hann talinn kraftaskáld. Þekktust er vafalaust þjóðsagan af því er hann kvaðst á við Fjandann á brún Þúfubjargs og bar hærra hlut. Mikill kveðskapur er varðveittur eftir Kolbein í handritum. Þar má nefna: Skilnaðarskrá (við satan); Píslarminningu, Dýrðardikt og kvæði sem nefnist Víðförull, landfræðilegt yfirlit til fróðleiks alþýðu manna. Í handritum eru honum einnig eignaðar Rímur af Tíodel riddara. Eru þær sex að tölu (sjá: Lbs 989 4to, Lbs 990 4to og AM 616a 4to).
Nokkrir sálmar eftir Kolbein voru prentaðir á Hólum 1682 og Rímur af Sveini Múkssyni í Ritum Rímnafélagsins.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.