Nokkur kvæði og vísur # 25826

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1965
Condition
Binding
Nokkur kvæði og vísur eftir Sigurð Norland.
Þetta er eina bók Sigurðar Norland.
Sigurður Norland (16. mars 1885 – 27. maí 1971) frá Hindisvík á Vatnsnesi var frumkvöðull í náttúruvernd á Íslandi. Hann var prestur í Tjarnarprestakalli en kaus að búa í Hindisvík frekar en sitja pestsetrið Tjörn. Sigurður var mikill áhugamaður um verndun sela og hvala og lét árið 1940 vernda selalátrið í Hindisvík. Sigurður var áhugamaður um hrossarækt og kom upp og ræktaði Hindisvíkurkyn.


Sigurður varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1907 og sigldi til Skotlands og var þar um tíma. Þaðan fór hann til Íslendingabyggða í Kanada og dvaldi um hríð í Danmörku á heimleiðinni. Hann fór svo í Prestaskólann og var síðasti kandidatinn sem útskrifaðist þaðan. Sigurður var svo vígður sem aðstoðarprestur á Vopnafirði og dvaldi þar í eitt ár eða þangað til hann fékk Tjarnarprestakall á Vatnsnesi. Hann bjó í Hindisvík hjá móður sinni en keypti svo jörðina á uppboði árið 1919 þegar móðir hans hætti búskap. Frá 1919 var Sigurður í nokkur ár prestur á Bergþórshvoli en sótti svo aftur um Tjarnarprestakall og var þar prestur til 1955.


Sigurður vildi að í Hindisvík risi þéttbýli með útgerð og umskipunarhöfn.


Siguður var mikill tungumálamaður og hagyrðingur. Hann lauk árið 1959 B.A. prófi í grísku frá Háskóla Íslands, þá 74 ára að aldri. Sigurður bjó í Hindisvík til æviloka. Hann var ókvæntur og barnlaus.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.