Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar # 77552
- Regular
- 4,900 kr
- Sale
- 4,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Author
—
Location
Reykjavík
Date
1988
Condition
—
Binding
—
Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar. Oddur Gottskálksson útlagði á norrænu. Sigurbjörn Einarsson, Guðrún Kvaran, Gunnlaugur Ingólfsson og Jón Aðalsteinn Jónsson rituðu inngang.
Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar er fyrsta bók sem prentuð var á íslenska tungu. Prentun bókarinnar lauk 12. apríl 1540 í Hróarskeldu, Danmörku. Bókin er um 330 blöð og í litlu broti eða 8vo. Ekki er vitað hve mörg eintök voru prentuð en talið er líklegt að Oddur hafi ætlað sérhverjum presti á Íslandi eintak.
Fræðimenn hafa löngum hrósað þýðingu Odds á Nýja testamenntinu fyrir það kjarnyrta mál sem Oddur notar og benda á að hann hafi lagt grunninn að þeim stíl sem enn er viðhafður í biblíuþýðingum. Margir hafa þó bent á að hann eigi oft í brösum við að mynda íslenskulegar setningar og að hann riti ekki hreint mál. Sigurður Nordal kallaði samt þýðinguna „eitt af leiðarmerkjunum í sögu íslenskra bókmennta“. Hann taldi stíl hans „svo svipmikinn og mergjaðan og mál hans svo auðugt, að enn er unun að lesa guðspjöllin í þeim búningi“. Dr. Jón Helgason prófessor tók ekki eins djúpt í árinni. Þó taldi hann stíl Odds „maklegan þeirra lofsyrða - ef litið er á þá kafla, sem best hafa tekist“.