Orðaheimur # 58071
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Orðaheimur. Íslensk hugtakaorðabók með orða- og orðasambandaskrá. Jón Hilmar Jónsson tók saman.
Hér er á ferðinni tímamótaverk í íslenskri orðabókaútgáfu því að Orðaheimur er fyrsta hugtakaorðabókin sem gefin er út hér á landi. Þetta er yfirgripsmikið en afar aðgengilegt verk og er fyrst og fremst ætlað að greiða notendumleið að viðeigandi orðalagi við hin ýmsu tækifæri, bæði í ræðu og riti. Bókin hefur því að nokkru leyti sama notkunargildi og samheitaorðabók, þó að framsetning og efnisskipan sé gjörólík. Hér er lýst um 33.000 orðasamböndum undir 840 hugtakaheitum. Það er því auðvelt að finna lausnir á hvers kyns vanda og jafnauðvelt er að gleyma sér yfir auðgi málsins og óþrjótandi tjáningarmöguleikum. Heildarskrá yfir leitarorð tryggir beinan aðgang að öllum orðasamböndum og hugtökum, og í bókinni er einnig ensk lykilorðaskrá sem auðveldar erlendum notendum aðgang að efni hennar. (Bókatíðindi 2002).