Persíus rímur # 7760
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Persíus rímur eftir Guðmund Andrésson og Bellerofontis rímur. Jakob Benediktsson bjó til prentunar.
Guðmundur var ættaður frá Bjargi í Miðfirði. Hann stundaði nám við Hólaskóla en varð síðar djákni og kenndi. Hann kom sér fljótlega í vandræði vegna kveðskapar, meðal annars gegn Þorláki Skúlasyni biskup, og samdi ritgerðina Discursus oppositionis gegn Stóradómi. Fyrir þetta var hann handtekinn og færður til Kaupmannahafnar af Henrik Bjelke, höfuðsmanni. Í Kaupmannahöfn var Guðmundur settur í Bláturn en var síðan náðaður af konungi 24. desember 1649 fyrir orð Ole Worm.
Ári síðar fékk hann inni í Kaupmannahafnarháskóla. Á árunum 1650-54 samdi hann íslensku orðabókina Lexicon Islandicum, með latneskum skýringum. Hún kom út í Kaupmannahöfn árið 1683. Orðabókin er talin vera merk heimild um íslenskan orðaforða á fyrri hluta 17. aldar og áfangi í íslenskri orðabókargerð. Hann bjó til prentunar Völuspá með skýringum, en bæði þessi rit voru gefin út eftir dauða hans af Peder Hansen Resen. Guðmundur lést í Kaupmannahöfn árið 1654, dánarörsökin var kólera.