Pétur Ben # 88802
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Pétur Ben. Ævisaga. Jakob F. Ásgeirsson skráði.
Pétur Benediktsson setti á sinni tíð mikinn svip á íslenskt þjóðlíf. Hann var sonur þingmannsins Benedikts Sveinssonar og bræður hans létu mjög að sér kveða. Sveinn í sjávarútvegi og Bjarni í stjórnmálabaráttunni. Um Pétur spunnust ótal sögur enda sópaði að honum og gamansemi hans var þjóðkunn.
Að loknu námi gerðist Pétur frumherju í utanríkisþjónustu hins unga lýðveldis. Hann var einatt á örlagaríkum tímum á hverjum stað - hann var í Madrís á Spáni þegar borgarastyrjöldin geisaði, í London þegar Þjóðverjar létu sprengjum rigna á borgina, í Moskvu á miðjum Stalíntímanum. Hann ferðaðist um stríðshrjáð lönd Mið- og Austur-Evrópu upp úr seinna stríði og gerði viðskiptasamninga og í París tók hann þátt í að útfæra Marshall-aðstoðina. Eftir að heim kom varð Pétur bankastjóri Landsbankans og síðar þingmaður fyrir Sjálfsstæðisflokkinn. Hann lést árið 1969. (Káputexti).