Píslarsaga séra Jóns Magnússonar # 37313
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Píslarsaga séra Jóns Magnússonar. Matthías Viðar Sæmundsson sá um útgáfuna. Þórður Ingi Guðjónsson og Jón Torfason bjuggu viðauka til prentunar.
Þetta sérstæðasta rit íslenskra bókmennta geymir einstæða lýsingu Jóns Magnússonar prests á Eyri við Skutulsfjörð frá 17. öld á þjáningum þeim sem galdramenn ollu honum um leið og hann áfellist yfirvöld fyrir slælega framgöngu gagnvart galdramönnum. Matthías Viðar Sæmundsson annaðist þessa viðamiklu útgáfu þar sem jafnframt eru dregin saman og prentuð öll tiltæk frumgögn, flest áður óbirt, um séra Jón, æviferil hans og galdramál. Þá ritar Matthías Viðar tvær ítarlegar ritgerðir í bókina, Ævi séra Jóns Magnússonar og Galdur og geðveiki - um píslarsögur og galdrasóttir á 17. öld, þar sem mál séra Jóns er sett í alþjóðlegt samhengi. Í ritröðinni Íslensk klassík.
(Bókatíðindi)