Úr hnefa # 75334
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Úr hnefa. Ljóð eftir Árna Ibsen.
Gott eintak, áritað.
Árni Ibsen fæddist í Stykkishólmi 17. maí 1948, en fluttist til móðurforeldra á Akranesi haustið 1952 ásamt móður sinni og tveimur eldri systrum og ólst þar upp. Árni lauk almennu kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1970 og stúdentsprófi frá sama skóla 1971; hann brautskráðist með BA gráðu í leiklist og enskum bókmenntum frá Exeter-háskóla á Englandi vorið 1975. Árni kenndi ensku við Ármúlaskóla í Reykjavík 1970-72 og ensku, leiklist og listasögu við Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1975-79. Hann starfaði um langt árabil sem leiklistar-og bókmenntaráðunautur Þjóðleikhússins og jafnframt sem þýðandi og leikstjóri, en frá 1995 var hann sjálfstætt starfandi rithöfundur. Hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa, sat m. a. í stjórn Leikskáldafélags Íslands frá 1989 og var formaður þess 1998 - 2004.
Árni sendi frá sér nokkrar ljóðabækur, m. a. Vort skarða líf, Úr hnefa og A Different Silence, mikið, tvítyngt ljóðaúrval á bók og geisladiski sem kom út í Englandi og Bandaríkjunum haustið 2000. Seinasta verk hans var ljóðabókin Á stöku stað með einnota myndavél sem Bjartur gaf út sumarið 2007. Eftir hann liggur fjöldi leikrita sem hafa verið þýdd á tíu tungumál og sviðsett í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Færeyjum, Þýskalandi, Ungverjalandi, Eistlandi, Írlandi, Englandi og Bandaríkjunum, en hér heima hafa öll helstu atvinnuleikhúsin sýnt verk hans. Hann samdi einnig kvikmyndahandrit og margvíslegt efni fyrir útvarp og sjónvarp, þætti, stuttmyndir, leikrit og áramótaskaup. (www.bokmenntaborgin.is)