Úr undirdjúpunum til Íslands # 72429

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2019
Condition
Binding
Úr undirdjúpunum til Íslands. Julius Schopka, U-52 og heimsstyrjöldin fyrri. Illugi Jökulsson skráði.
Julius Schopka var 24 ára þegar hann kom til Íslands árið 1920. Hann hafði verið í þýska flotanum í nýliðinni heimsstyrjöld, í áhöfn U-52, kafbáts sem fór um hafdjúpin og gerði árásir á tugi skipa. Stríðið var grimmilegt og bátsverjinn ungi upplifði margt skelfilegt – en átti líka góðar stundir, eins og þegar hann bjargaði litlum kettlingi af sökkvandi beitiskipi. Íslandsfarið Flóra var eitt þeirra skipa sem kafbáturinn sökkti en áhöfn og farþegar komust af.


Eftir að Schopka settist að í Reykjavík varð hann einn forvígismanna Þjóðverja hérlendis og tók á móti þýskum herskipum sem komu til hafnar. Þar hitti hann menn sem áttu eftir að hefjast til æðstu metorða innan þriðja ríkisins en sjálfur var hann eindreginn andstæðingur nasista. Hann varð íslenskur ríkisborgari, vel metinn kaupmaður, og eignaðist börn og buru.


Illugi Jökulsson segir hér viðburðaríka sögu Juliusar Schopka og byggir líflega frásögn sína á minningum hans sjálfs úr stríðinu og miklum fjölda annarra heimilda. Um leið er gangur fyrri heimsstyrjaldar rakinn, sögð saga þýska herskipaflotans og greint frá helstu atburðum hinna róstusömu ára eftir stríð.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.