Raddir um nótt # 63492
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Raddir um nótt. Ljóð eftir Helga Sveinsson.
Séra Helgi Sveinsson fæddist 25. júlí 1908 að Hvítsstöðum í Mýrasýslu.
Lauk stúdentsprófi 1930, kennaraprófi 1934 og guðfræðiprófi 1936. Barnakennari 1934–37. Prestur að Hálsi í Fnjóskadal 1936–40 og í Arnarbælisprestakalli frá 1940 til æviloka. Bjó í Hveragerði frá 1942. Kennari þar frá 1943 við unglingaskóla, Garðyrkjuskólann að Reykjum og Hlíðardalsskóla. Í sýslunefnd frá 1946.
Helgi var hugsjónamaður og var frelsi, jafnrétti og bræðralag honum hugleikið. Hann var hrókur alls fagnaðar á vinafundum og átti létt með að yrkja. Helgi var orðlagður fyrir góðar ræður og orti frábær ljóð, en þekktastur er hann þó fyrir tækifærisvísur sem margar urðu landskunnar.
Raddir um nótt er fyrsta ljóðabók séra Helga.
Ástir
Ungar varir okkar mættust,
óskir beggja saman runnu.
Brosin þögul eiða unnu.
Eldarnir á himnum brunnu.
Heitt og viðkvæmt hrærast sá ég
hjarta þitt í leyndu tári.
Bernsku þinnar sólskinssumur
sváfu í þínu gullna hári.
Konungarnir heiðu, háu, -
heitir dagar lífs og máttar, -
komu í skýjum austuráttar
eftir drauma vökunáttar.
Svanir okkar urðu fleygir:
orðin, sem á vörum lágu. -
Jörðin sigldi um sumarnætur
svefnlaus yfir djúpin bláu.