Regn í maí # 73680
- Regular
- 19.500 kr
- Sale
- 19.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Regn í maí. Ljóð eftir Einar Braga. Hörður Ágústsson gerði teikningar og kápu og sá um útlit bókarinnar.
Con amore
Ég elska konuna nakta
með næturgala í augum:
nývaknaða angandi lilju
laugaða hvítri morgunsól,
konuna unga ólétta
með knapprauð blóm
á bleikum þúfum
þreyjulaus af þrá
eftir þyrstum hunangsfiðrildum,
konuna stolta sigurglaða
sýnandi öllum heiminum
sinn vorsána frjóa akur
þar sem undrið vex í myrkri
moldinni gljúpu: vex.
Con amore
Ég elska konuna nakta
með næturgala í augum:
nývaknaða angandi lilju
laugaða hvítri morgunsól,
konuna unga ólétta
með knapprauð blóm
á bleikum þúfum
þreyjulaus af þrá
eftir þyrstum hunangsfiðrildum,
konuna stolta sigurglaða
sýnandi öllum heiminum
sinn vorsána frjóa akur
þar sem undrið vex í myrkri
moldinni gljúpu: vex.