Reimleikar í Reykjavík # 72494

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2013
Condition
Binding
Reimleikar í Reykjavík. Steinar Bragi tók saman. Ljósmyndir Jóhann Páll Valdimarsson. Teikningar Sunna Sigurðardóttir.
Veistu að á Alþingi er háaloft sem stendur autt fyrir utan eina möru sem sogar til sín hamingjuna? Vissirðu að í Tjörninni er útburður sem á síðkvöldum kjagar að leiði móður sinnar í kirkjugarðinum og líkist vængbrotnum hrafnsunga? Hefurðu gist í svörtu herbergjunum á Hótel Borg? Og veistu hvað er á bak við kirkjuna í Landakoti?


Þegar Íslendingar yfirgáfu sveitirnar tóku þeir draugana með sér, og líka þörfina fyrir að koma á þá böndum með sögum. Válynd veður, náttúruhamfarir, fátækt og einangrun hafa löngum verið frjór jarðvegur fyrir hvers kyns volæði, ótímabæran dauða – og týndar sálir.


Reimleikar í Reykjavík er byggð á ítarlegum viðtölum við lifandi og í sumum tilfellum dána Íslendinga. Hér birtast í fyrsta sinn nokkrar af alræmdustu draugasögum Reykjavíkur í seinni tíð, í bland við sögulegan fróðleik um borgina.


Steinar Bragi samdi texta bókarinnar en hann og Rakel Garðarsdóttir tóku tugi viðtala við fólk í bænum í leit að bestu, óþekktustu og hryllilegustu draugasögum miðbæjarins. Jóhann Páll Valdimarsson tók myndir fyrir bókina en teikningar í henni eru eftir Sunnu Sigurðardóttur.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.