Réttlæti hins sterka # 91224

Regular
2,900 kr
Sale
2,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Rekstrarstofan, 2023.
Date
—
Condition
—
Binding
—

Réttlæti hins sterka. Ádeila á dómskerfið og Alþingi. Eftir Jörgen Ingimar Hansson.
Getur það verið að á Íslandi gildi réttlæti hins sterka? Er dómskerfið og löggjafarvaldið að sinna skyldum sínum? Eru ekki allir jafnir fyrir lögum í lýðræðisríkinu Íslandi? Hér er á ferðinni einstök bók. Höfundurinn, Jörgen Ingimar Hansson, er rekstrarverkfræðingur og hefur staðið í atvinnurekstri um ára bil. Hann rekur hér sögu af athyglisverðum málaferlum sem spannar nokkur ár. Sú vegferð og það mótlæti sem hann þurfti að eiga við eru rakin hér. Ingimar stóð frammi fyrir því að þurfa að leita til rithandarsérfræðinga víðsvegar um heiminn til þess að reyna að bera af sér sakir. Þær rannsóknir og sú vinna sem hann vann í framhaldinu varð til þess að hann ferðaðist sjálfur til Ítalíu þar sem hann var aðalfyrirlesari á stórri ráðstefnu um falsanir.
Hann upplifði af eigin raun það sem fjölmargir aðrir hafa þurft að reyna. Hvernig dómskerfið á Íslandi hefur ekki fylgt þeirri þróun sem orðið hefur síðustu áratugi. Hversu lengi er hægt að draga einstaklinga áfram í kostnaðarsamri málsvörn. Hvernig réttlæti hins sterka og þeirra sem hafa yfir miklum fjármunum að ráða vinnur gegn almenningi.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.