Rétturinn til letinnar # 43846

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Selfoss
Date
2015
Condition
Binding
Rétturinn til letinnar. Eftir Paul Lafargue. Guðmundur J. Guðmundsson þýddi.
„Verum löt á öllum sviðum, fyrir utan ástir og drykkju, fyrir utan leti.“ Þessi tilvitnun í þýska rithöfundinn Lessing eru upphafsorð bókarinnar Rétturinn til letinnar.


Ritið er eitt þekktasta áróðursrita sósíalista 19. aldar að Kommúnistaávarpinu einu undanskildu.
Í riti þessu deilir höfundurinn á langan vinnudag og almenna dýrkun á vinnunni. Hann rökstyður að með styttri vinnuviku megi auka framleiðni sem er aldrei nógsamlega brýnt fyrir hinum vinnuglöðu Íslendingum. En þetta 130 ára vakningarrit er einnig ádeila á sóun og græðgi iðnaðarsamfélagsins og á því fullt erindi til okkar. Gildir þá einu hvort horft er til vinnudeilna samtímans hér á Íslandi eða vaxandi umhverfisvitundar og kreppu kapítalismans um heim allan á síðustu árum.


Höfundurinn Paul Lafargue var franskur, læknir að mennt en starfaði lengstum við blaðamennsku og stjórnmál. Hann var tengdasonur Karls Marx, kvæntur Lauru dóttur hans. Þann 26. nóvember 1911 fyrirfóru þau hjónin sér í sameiningu, þá bæði komin um sjötugt. Að baki þeirri ákvörðun lágu hugsjónaástæður sem tengdust andúð þeirra á hefðbundnum trúarsetningum og trú þeirra á veraldlega lífsnautnastefnu.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.