Reykvísk ástaljóð # 33541
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Reykvísk ástaljóð. (Með lagboðum). Höfundar eru Adam og Eva. Hver eða hverjir eru þar á ferð?
Ég bauð þér sæti í sófa hjá mér
og cigarettur og brennivín.
Þú baðst mig, aldrei að fara frá þér,
ég fann, þá stund var ég elskan þín.
Frá okkar fundum ei sófinn segi, -
í sæludraumum kvöldið leið. -
Svo fór ég með þér á drottins degi,
til dalakofans sem okkar beið.
En því var ver, ég um seinan sá það,
hve sumt í heiminum reynist valt.
Þú varst svo lipur og laginn á það,
að lofa fögru og svíkja alt.
Ég bauð þér sæti í sófa hjá mér
og cigarettur og brennivín.
Þú baðst mig, aldrei að fara frá þér,
ég fann, þá stund var ég elskan þín.
Frá okkar fundum ei sófinn segi, -
í sæludraumum kvöldið leið. -
Svo fór ég með þér á drottins degi,
til dalakofans sem okkar beið.
En því var ver, ég um seinan sá það,
hve sumt í heiminum reynist valt.
Þú varst svo lipur og laginn á það,
að lofa fögru og svíkja alt.