Riddarar hringstigans # 68881
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Riddarar hringstigans. Skáldsaga eftir Einar Má Guðmundsson.
Riddarar hringstigans hlaut fyrstu viðurkenningu í bókmenntasamkeppni Almenna bókafélagsins sem útgáfan efndi til á tuttugu og fimm ára afmæli sínu. Viðurkenningin var veitt í mars 1982.
Á meðan ég hleyp niður nýbónaðan stigann með klaufhamarinn hans pabba í annarri hendinni situr Óli á olíutanknum fyrir framan húsið.
Áður en ég veit af hef ég lamið Óla með klaufhamrinum í hausinn.
Óli æpir.
Óli skelfur.
Hausinn á Óla breytist í marga hausa. Óli hefur fjóra hausa.
Síðan glúkk: Upp úr burstaklipptu höfðinu skýst kúla, lítið hvítt egg, og tárin virðast hlaupa á undan Óla innum kjallaradyrnar á húsinu.
Ég stend einn eftir fyrir framan olíutankinn sem er grafinn niður í jörðina. Aleinn með klaufhamarinn í hendinni. Með augunum sprengi ég tankinn í loft upp. Eldgular glæringar, stjörnuljós upp úr jörðinni.
Helvítis andskotans.
Ég bölva klaufhamrinum.
Ég bölva pabba sem á klaufhamarinn.
Ég bölva Óla fyrir að vera með hausinn fyrir.
Ég bölva búðinni sem selur klaufhamra.
Ég bölva. Ég bölva.
Niður með klaufhamarinn!