Rímblöð # 78508

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1971
Condition
Binding
Rímblöð. Ferhend smákvæði eftir Hannes Pétursson.



Hannes Pétursson fæddist á Sauðárkróki 14. desember 1931. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og kandídatsprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1959. Hann stundaði nám í germönskum fræðum við háskólana í Köln og Heidelberg 1952 til 1954. Hannes vann við útgáfu hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs á árunum 1964-1976, var útgáfustjóri Smábóka Menningarsjóðs 1959-1969 og Alfræði Menningarsjóðs 1972-1976. Hann sat í ritstjórn Skagfirðingabókar, ársriti Sögufélags Skagfirðinga, á árunum 1966-1973.


Fyrsta bók Hannesar, Kvæðabók, kom út 1955. Hann hefur sent frá sér fjölda kvæða- og ljóðabóka síðan sem og smásagnasafn, fræðirit, greinar og ævisögur. Hann hefur einnig fengist við þýðingar, meðal annars þýddi hann Hamskiptin eftir Franz Kafka úr þýsku 1960. Hannes hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín á löngum ritferli. Hann var kjörinn heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands 1991 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1993 fyrir ljóðabókina Eldhylur. Hannes var útnefndur Heiðurssveitungi Álftaness 2006.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.