Ritsafn Theodoru Thoroddsen # 62846

Regular
3,900 kr
Sale
3,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1960
Condition
Binding
Ritsafn Theodoru Thoroddsen. Sigurður Nordal sá um útgáfuna.
Theódóra fæddist á Kvennaberkku í Dölum en foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson prestur og Alþingismaður (móðurbróðir Matthíasar Jochumssonar skálds), og Katrín Ólafsdóttir dóttir Sívertsens í Flatey. Hjónin eignuðust 15 börn en Theódóra var yngst þeirra þriggja sem náðu fullorðinsaldri. Hin tvö voru Ásthildur og Ólafur.


Theódóra stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík og útskrifaðist 1879. Hún giftist Skúla Thoroddsen lögfræðingi og flutti til Ísafjarðar þegar maður hennar varð sýslumaður þar. Maður hennar var dæmdur frá embætti 1893 en þau bjuggu áfram á Ísafirði í nokkur ár og ráku þar verslun. Árin 1901 fluttu þau suður, fyrst til Bessastaða en fluttu til Reykjavíkur árið 1908. Skúli og Theódóra eignuðust þrettán börn. Þau voru: Unnur húsfreyja, Guðmundur prófessor og yfirlæknir, Þorvaldur lést í frumbernsku, Skúli yfirdómslögmaður og alþingismaður, Þorvaldur fór til Vesturheims, Kristín Ólína yfirhjúkrunarkona og skólastýra, Katrín læknir, alþingismaður og bæjarfulltrúi, Jón lögfræðingur og skáld, Ragnhildur húsfreyja, Bolli borgarverkfræðingur, Sigurður verkfræðingur og alþingismaður, Sverrir bankafulltrúi, María Kristín húsfreyja.


Þulur Theódóru voru fyrst gefnar út 1916. Guðmundur Thorsteinsson (Muggur), systursonur hennar, myndskreytti. Þær voru endurútgefnar 1938 (Sigurður Thoroddsen myndskreytti útgáfuna þá ásamt Muggi), 1950, 1981 og 2000. Ritsafn Theódóru kom út 1960. Um útgáfuna sá Sigurður Nordal. Eins og gengur (smásögur) kom út 1920.


Kvæði, stökur og sagnir Theódóru eru birtar víða, meðal annars í Mánaðarriti Lestrarfélags kvenna í Reykjavík (1911-1931). Hún þýddi sögur úr öðrum málum og safnaði einnig þjóðsögum. Islandsk folketru var útgefin í Kristjaníu 1924, eftir handriti hennar. Theódóra var einnig mikilvirk og listfeng hannyrðakona. Sýningar hafa verið haldnar með verkum hennar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.