Rógmálmur og grásilfur # 87539
- Regular
- 19.500 kr
- Sale
- 19.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Rógmálmur og grásilfur. Ljóð og þýðingar eftir Dag Sigurðarson.
Hér eru auk frumortra ljóða Dags þýðingar hans á :- Fjórir forleikir um gullin golunnar e. Carl Sandburg. - Ameríka e. Allen Ginsberg. - Einbúi ; Regnið ; Ecuador ; Óður til Emiliano Zapato með hljómlist eftir Tata Nacho ; Cortés ; Glæpirnir ; Húngur á Suðurlandi ; Eufrosino Ramírez ; Quilareyr ; Einræðisherrarnir ; Suðrænn vetur, á hestbaki ; Hjartað úr Pedro de Valivia ; Fángelsin ; Annað veifið e. Pablo Neruda. - Múgur e. César Vallejo.
Draumur forsætisráðherrans.
Húsið stóð afsíðis í úthverfi, þriggja hæða timburbákn. Frá gluggunum bjarmaði rauðu. Forsætisráðherranum varð ekki um sel.
Haglið særði feitar kinnarnar. Frakkinn flaksaðist eins og tjúgfáni.
Forsætisráðherrann ríghélt í börðin á pípuhattinum tilþessað hann fyki ekki í þessu gjörningaveðri.
Forsætisráðherrann skalf. Hvernig var hann hingað kominn? Hvar var ráðherrabíllinn? Hvergi sjáanlegur.
Loks áræddi forsætisráðherrann að gánga að húsinu og hringja. Allt var betra en að taka almenningsvagn heim.
Dyrnar opnuðust. Kommúnistar komu í gættina og kipptu honum innfyrir.
- Ertu kominn, gripurinn?
Forsætisráðherrann skalf. Löfin á frakkanum skulfu.
Kommarnir voru rauðir og þrútnir í framan, með húngurglampa í augum, lufsulegir til fara. Tveir þeirra skelltu forsætisráðherranum uppá borð og héldu honum föstum á höndum og fótum. Aðrir tveir sóttu stórviðarsög og tóku að saga hann sundur um mittið. Sá fimmti sat hjá, yddaði framtennur sínar með fínni þjöl og fylgdist með.
- Fötin mín ! Fötin mín ! Fínu fötin mín ! veinaði forsætisráðherrann: Kjólfötin mín !
- Já, við vitum það, sagði sá sem hélt höndunum: Allur heimurinn er ein heljarstór flík.
- Skrásett vörumerki ! bölvaði sá sem hélt löppunum. Þjalarinn urraði.
Sögin beit illa. Forsætisráðherrann leið vítiskvalir. Hlutabréf ultu framúr sárinu í stað innýfla, silver dollars í blóðs stað.
- Er það maginn? spurði vinnukonan. Hún stóð yfir honum með morgunteið.
Jú, það var maginn. Ekkert virtist geta hjálpað þessum maga. Hvorki uppskurðir né opinberar lystireisur.