Rökkurstundir # 72052

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1929
Condition
Binding
Rökkurstundir. Tvær sögur eftir Henriettu frá Flatey.
Hér eru sögurnar: - Lækningin. Nútímasaga - Huldir harmar. Saga frá síðari hluta nítjándu aldar.
Henríetta frá Flatey er skáldanafn Jensínu Henríettu Hermannsdóttur. Hún fæddist 11. júlí 1886 í Flatey á Breiðafirði og ólst þar upp. Á búskaparárum sínum bjó hún lengst af í Otradal í Arnarfirði með eiginmanni sínum, Guðmundi Guðmundssyni, bónda og sjómanni. Þau eignuðust níu börn og Henríetta notaði rökkurstundirnar, þegar heimilið var komið í ró, til skrifta. Eina útgefna verk hennar ber því nafn með rentu, Rökkurstundir. Bókin hefur að geyma tvær stuttar skáldsögur: Lækningin – nútímasaga og Huldir harmar – saga frá nítjándu öld. Það er athyglisvert hversu ólíkar þessar tvær sögur eru, sú fyrrnefnda er skrifuð inn í formúlu afþreyingarsagna en sú síðarnefnda er frumleg saga um þrjár kynslóðir kvenna þar sem kvennasjónarmið kemur glöggt fram sem og sálfræðilegt innsæi. Í sögunni er hjónabandinu hafnað á afdráttarlausan hátt sem slæmum kosti fyrir konur og sjálfsfórn kvenna hafnað.


Henríetta lést árið 1955.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.