Römm er sú taug # 52784

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1950
Condition
Binding
Römm er sú taug. Kvæði eftir Friðrik Pétur Sigurðsson.
Fyrsta og eina bók Friðriks Péturs.
Friðrik Pétur Sigurðsson er fæddur í Fagradal í Geysisbyggð í Nýja-Íslandi í Kanada. Bókina gaf hann út hér á landi þegar hann var hér í sinni fyrstu ferð "heim til Íslands".
Í Lögbergi 28. september 1950 fjallar Árni G. Eylands um bókina Römm er sú taug. Þar segir Árni m.a. "Friðrik er fæddur vestra og hefir dvalið þar við búskap alla ævi og aldrei komið til Íslands fyrr. Nú hefir Friðrik gert það að gamni sínu, að gefa út bók með kvæðum og vísum eftir sig á meðan þau mæðginin eru

að skoða gamla landið. Og annað er skemmtilegt við þetta, dóttir Friðriks hefir gengið frá handriti bókarinnar upp á eigin spýtur og leist það svo vel af hendi að merkilegt má heita. Friðrik nefnir bók sína, Römm

er sú taug
. Hún er prentuð í

Prentsmiðju Austurlands og svo

snoturlega frágengin að öllu

leyti að það mætti vel vera til

fyrirmyndar að minnsta kosti

öllum þeim, sem ekki bíta sig í

það, að pappírseyðslan sé aðalatriðið við skáldskap og bóka-

útgáfu. Ég ætla mér ekki að dæma

skáldskap Friðriks, en ég vil þó

vekja athygli á bók hans og

þeirra mæðginanna. Mér finnst

tilkoma bókarinnar allmerkileg.

Þarna hefir íþrótt vísunnar þolað þriggja ættliða „harðvist" við

hlið enskunnar, það er hluti af

þeirri íþrótt, er Fanney dóttir

Friðriks gengur frá handriti að

bók föður síns og vinnur þannig

verk sem margur góður hagyrðingur hér heima hefði vart gert

hjálparlaust fyrir sjálfan sig,

hvað þá aðra.

Þessi hálfsjötugi bóndi, sem

komið hefir upp 12 mannvænlegum börnum, hefir vafalaust

lengst af búskap sínum haft annað að sýsla en að sökkva sér niður í bókalestur og iðka ljóðagerð. En að honum sé íslenzk

hagmælska í blóð borin er meira

en augljóst.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.