Rondo # 51668

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1952
Condition
Binding
Rondo. Leikrit í fjórum þáttum í frjálsu formi. Eftir Steingerði Guðmundsdóttir.

Steingerður Guðmundsdóttir var fædd á Ísafirði 1912 dóttir Guðmundar Guðmundssonar Skólaskálds. Þegar hún var 11 ára lék hún í sýningu hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Leikhúsið heillaði hana strax og hún hóf nám við Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar, leikara, og þaðan lá leiðin til New York í The American Academy of Dramatic Arts. Einnig stundaði hún balletnám og látbragðsleik í Bandaríkjunum. Á námsárunum vaknaði áhugi hennar á einleikjaforminu og með einleikinn í farteskinu kom hún heim til Íslands og kynnti fyrir landsmönnum. Vorið 1947 sýndi hún frumsaminn einleik í Iðnó og ritaði Halldór Laxness leikdóm um sýninguna og sagði þar m.a..: ,,Ég er sannfærður um að íslenska leikhúsinu bætist góður liðsmaður í Steingerði Guðmundsdóttur. Samviskusemi, smekkvísi og nákvæmni virðist henni í blóð borið, og hún hefur í list sinni feingið skólun sem ætti að geta orðið undirstaða alvarlegs liststarfs. Einginn sem sá leik hennar á föstudagskvöld þarf að efast um að hún hafi þetta eina prósent gáfna móti 99 prósentum vinnu sem útheimtist til að verða listamaður.”
Steingerður er einkum þekkt sem ljóðskáld. Ljóðabækur hennar eru alls sjö auk ljóðasafnsins Bláin, 2004, er inniheldur úrval ljóða Steingerðar. Hún samdi einnig nokkur leikrit auk einleikjanna og komu tvo þeirra út á bók, Rondo og Nocturne. Steingerður starfaði um tíma sem leiklistargagnrýnandi og þóttu dómar hennar mjög vandaðir. Ekki voru allir á eitt sáttir um skrif hennar frekar en oft er þegar um leikdóma er að ræða. Einu leikhúsanna sárnaði það mikið að Steingerði var neitað um frímiða í leikhúsið.


Rondo er fyrsta verk Steingerðar sem komst á prent en áður hafði hún birt ljóð m.a. í Ganglera.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.