Örvamælir # 41462
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Örvamælir. Ljóð eftir Hannes Sigfússon.
Eftir minn dag
Eftir minn dag þín dögun
Það sem dreifðist í mósku
duft og aska horfins heims
fellur á máðar vindskeiðar
á vakir húsa
líkt og svarf að segli
Heimsmuslið kemur til skila
hríslast um gömul form og skelfir
bláum húsgöflum
beittum hnýfli reykháfa
Sólstafir stafa þér glugga
steinveggi og dyrastafi
Þú stendur á þröskuldi lífs þíns
og lest undrandi heim þinn saman
(hann sem mér er týndur)
Þú sérð liti hans kvikna
eins og ljós borið fram djúpt
úr dul sérhvers hlutar
út í dagsbirtuna og inn í
alsgáðan hug þinn.
Eftir minn dag
Eftir minn dag þín dögun
Það sem dreifðist í mósku
duft og aska horfins heims
fellur á máðar vindskeiðar
á vakir húsa
líkt og svarf að segli
Heimsmuslið kemur til skila
hríslast um gömul form og skelfir
bláum húsgöflum
beittum hnýfli reykháfa
Sólstafir stafa þér glugga
steinveggi og dyrastafi
Þú stendur á þröskuldi lífs þíns
og lest undrandi heim þinn saman
(hann sem mér er týndur)
Þú sérð liti hans kvikna
eins og ljós borið fram djúpt
úr dul sérhvers hlutar
út í dagsbirtuna og inn í
alsgáðan hug þinn.