Saga daganna # 90500

Regular
6,900 kr
Sale
6,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Almenna bókafélagið, 1993.
Date
1993
Condition
Binding

Saga daganna. Eftir Árni Björnsson þjóðháttafræðing.
Hér er fjallað um merkisdaga ársins og hátíðir. Rakin er saga þeirra á Íslandi frá upphafi til okkar tíma, og skýrður uppruni þeirra og samhengi við atvinnuhætti, trúarbrögð og menningarsögu.
Árni Björnsson þjóðháttarfræðingur lýsir bæði nútímahátíðum og fornum merkisdögum. Hann segir með sama smitandi áhuga frá sautjándanum eða verslunnarmannahelginni og katólskum messudögum íslensku dýrlinganna Þorláks, Jóns og Gvendar góða, fjallar bæði um sjómannadaginn á 20. öld og um geilsadag hinn forna eða eldaskildag leiguliða í gamla bændasamfélaginu. Megináhersla er að sjálfsögðu lögð á þær hátíðir og merka daga sem fyrr og síðar lýsa sérstöðu íslensks samfélags og mannlífs: sumardagurinn fyrsti, jólin, þorrinn og góan, krossmessur, töðugjöld…
Doktorsverk Árna Björnssonar er bæði handbók og fræðirit. Saga daganna er sögð í 66 sjálfstæðum köflum sem eins má lesa hvern um sig eða saman í röð. Bókin er ríkulega myndskreytt og efnið afar aðgengilegt með útdráttum, spássíuvísunum og ítarlegri skrá atriðisorða. Á bak þáttunum 66 er í sérstökum viðbæti gefið yfirlit um rúmlega sjötíu dýrlingamessur sem að auki eru taldar í íslenskum almanökum.
Í hátíðarhaldi hverrar þjóðar koma saman saga hennar, atvinnulíf og náttúruaðstæður. Þessi umfjöllun um merkisdaga á Íslandi verður því jafnframt einskonar könnun íslenskrar þjóðarsálar fyrr og nú. Saga daganna er sannkölluð fróðleiksnáma fyrir sérhvern íslenskan lesanda, og lipur stíltök Árna verða til þess að textinn er allajafna hreinn skemmtilestur.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.