Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi # 64811

Regular
6,900 kr
Sale
6,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2018
Condition
Binding
Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi. Eftir Arnþór Gunnarsson. Myndatextar Arnþór Gunnarsson og Friðþór Eydal.



Árið 2016 markaði 70 ár frá upphafi flugvallareksturs og flugleiðsöguþjónustu Íslendinga. Isavia hefur af því tilefni látið vinna ítarlegt heimildarrit um þennan merkilega þátt í samgöngusögu þjóðarinnar. Bókin er gefin út sem rafbók á vef Isavia og einnig í prentuðum eintökum.


Flugsamgöngur hafa frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, bæði innanlands og milli landa. Grundvöllur þessarar starfsemi hvílir á rekstri flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Í bókinni er rakin saga þessara stoða flugsins allt frá því landsmenn tóku fyrst að þreifa fyrir sér með flugrekstur.


Á árunum 1945–2006 annaðist Flugmálastjórn Íslands að miklu leyti uppbyggingu og rekstur flugvalla og tengdrar starfsemi. Flugstoðir ohf. tóku við þessu hlutverki árið 2007 og Isavia ohf. þremur árum síðar. Varnarliðið bar lengst af hitann og þungann af rekstri Keflavíkurflugvallar, sem varð snemma miðstöð millilandaflugs og áningarstaður í Norður-Atlantshafsflugi, en Íslendingar tóku alfarið við rekstri hans árið 2006. Frá stríðslokum hafa Íslendingar einnig veitt flugleiðsöguþjónustu á stóru svæði yfir Norður-Atlantshafi í nánu samstarfi við Alþjóðaflugmálastofnunina.


Við uppbyggingu flugvalla á landsbyggðinni tvinnuðust gjarnan saman opinbert framtak og hugsjónir og áræðni einstaklinga sem vildu rjúfa einangrun, bæta samgöngur og auka lífsgæði íbúa. Var þeim jafnan tekið fagnandi en harðar deilur hafa stundum staðið um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar.


Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi rekur þessa þróun og annað sem málið snertir. Bókin byggir á ítarlegri rannsókn á fjölbreyttum heimildum og er ríkulega búin myndefni úr þessari merku sögu.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.