Saga heimspekinnar # 88274
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Saga heimspekinnar. Eftir Bryan Magee. Róbert Jack þýddi.
Bókin varpar ljósi á helstu viðfangsefni heimspekinnar, beinir sjónum að grundvallaratriðum í tilveru mannsins og greinir frá öllum merkustu heimspekingum hins vestræna heims og lykilverkum þeirra.
Meðal þeirra heimspekilegu málefna sem fengist er við eru spurningar á borð við "Hvað er frjáls vilji?" og "Er hægt að sanna tilvist Guðs?". Höfundur lýkur upp heimi hugmyndanna svo hann verður öllum auðskiljanlegur og setur auk þess líf og starf heimspekinganna í sögulegt samhengi.
Prófessor Bryan Magee nam við háskólann í Oxford og lauk prófi í sagnfræði, en einnig í heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði. Hann kenndi við Yale-háskóla til ársins 1956 er hann sagði skilið við háskólasamfélagið og gerðist rithöfundur, gagnrýnandi og fjölmiðlamaður.
Prófessor Magee sneri sér aftur að háskólakennslu árið 1970 og er nú gestaprófessor við King´s College í London. Af mörgum ritverkum hans má nefna Modern British Philosophy, Popper, The Philosophy of Schopenhauer og hann hefur einnig gert tvær sjónvarpsþáttaraðir, Men of ideas og The Great Philosophers.