Saga þeirra, sagan mín # 87263

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2014
Condition
Binding
Saga þeirra, sagan mín. Katrín Stella Briem. Helga Guðrún Johnson skráði.
Þegar Katrín Thorsteinsson giftist Eggerti Briem vorið 1901 og þau taka við búskap í Viðey tengjast auðugar og valdamiklar fjölskyldur. Katrín er sjálfstæð kona sem lætur hjartað ráða för og storkar gildum samfélagsins. Harmræn örlög hennar móta líf dóttur hennar, heimsborgarans Ingibjargar Briem – Stellu, sem festir hvergi rætur.


Stúlkan sem hlaut nöfn móður sinnar og ömmu, Katrín Stella Briem – Kanda, segir hér sögu þeirra þriggja. Líf Köndu einkennist af sviptivindum og skörpum andstæðum. Í gegnum föðurættina tekur hún þátt í allsnægtalífi bresku yfirstéttarinnar en þess á milli fylgir hún móður sinni heimshorna á milli í rótlausri tilveru og stundum sárri fátækt. Þegar líferni Stellu kemur þeim mæðgum á götuna þarf Kanda að rífa sig upp úr örbirgðinni og hefja nýtt líf.


Úr lífsþráðum þessara þriggja kvenna spinnur Helga Guðrún Johnson margslungna örlagasögu þar sem atburðarásin er oft og tíðum ævintýralegri en í skáldskap. Hér er hulunni svipt af sögum sem lengi hafa legið í þagnargildi.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.