Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur # 77284
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur. Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu. Guðný Hallgrímsdóttir tók saman og skráði.
Sagan sem sögð er í þessari bók byggist meðal annars á sjálfsævisögubroti sem varðveist hefur og ber titilinn Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur. Guðrún fæddist árið 1759 og er saga hennar líklega elsta varðveitta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu – vinnukonu frá 18. öld. Í sögunni fjallar Guðrún á opinskáan hátt um líf sitt í Eyjafirði og erfitt hjónaband með ótrúum eiginmanni. Frásögnin er full af einlægum og litskrúðugum lýsingum af mönnum og málefnum. Í bókinni er fjallað um líf hennar og afar þrönga stéttarstöðu og hvernig hún nær að hasla sér völl í erfiðu árferði móðuharðindanna. Döpur endalok ævi hennar draga fram hið harmsögulega í lífi þúsunda Íslendinga á þessum tíma. (Bókatíðindi 2013).