Sagnablöð I - III - Örn á Steðja safnaði # 74084
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sagnablöð. Örn á Steðja safnaði.
Jóhannes Örn Jónsson (Örn frá Steðja) fæddur í Árnesi í Tungusveit í Skagafirði 1. október 1892, dáinn 15. október 1960. Foreldrar hans voru Jón Jóhannesson og Ólína Ólafsdóttir. Jóhannes var kvæntur Sigríði Ágústsdóttur (f. 18. júní 1908, d. 30. sept. 1988) frá Kjós í Trékyllisvík, systur Símonar Jóhannesar Ágústssonar prófessors. Þau Jóhannes og Sigríður bjuggu í Fagranesi í Öxnadal 1930 – 1934 en fluttust þá að Neðstalandi í Öxnadal og bjuggu þar í eitt ár til 1935 og fluttust að Steðja á Þelamörk og bjuggu þar til ársins 1960. Þaðan fluttust þau til Akureyrar.
Jóhannes var mikill grúskari og þjóðsagnasafnari. Hann gaf út bækurnar, Sagnablöð og Sagnablöð hin nýju. Hann var einnig góður hagyrðingur.
Þau Jóhannes og Sigríður áttu fjögur börn, m. a. Ævar Jón Forna, sem var uppfinningamaður og hefur starfað fram undir þetta á Orkustofnun/Íslenskum orkurannsóknum og er þekktur fyrir lúpínuseyðið sem hann barðist fyrir að fá viðurkennt sem krabbameinslyf.